Ég á eitt bílastæði. Ég vökva það, klappa því, breiði yfir það á kvöldin og lofa því af öllu hjarta að ég muni aldrei leggja í það. Það á ekki að þurfa að bera mig líka. Það er nóg að það beri alla borgina uppi.