Á rölti mínu um hundraðogátta sá ég vel í Snæfellsjökul. Fyrrum nágranni minn sagði að sæist vel í Snæfellsjökul þýddi það að… ég náði því aldrei hvað það þýddi…
Nágranni minn var orðinn ansi hrumur og mér fannst leiðinlegt að biðja hann í sífellu að endurtaka sig, svo hafði hann fyrr um daginn verið að skamma mig fyrir að henda sígarettustubbum í ruslatunnuna, spurði hvort ég vildi að allir í blokkinni brynnu inni til að svala níkótínþörf minni, svo mér fannst betra að segja sem minnst.
En að sjá Snæfellsjökul þýðir eitthvað.