Framundan er vetrarfrí, fjórir dagar frá tölvunni. Ég er uppspenntur að sjá hvað allt verður breytt á mánudaginn.

Ég hef ekki upplifað annað eins. Gervigreindin hefur gjörbreytt hvernig ég vinn í tölvum. Ég skissa upp, skipulegg og læt hana um að sjá um „handavinnuna“. Að sýna fram á að eitthvað sé góð hugmynd tekur klukkutíma, en ekki daga.

En að sama skapi hef ég aldrei upplifað að ég sé jafn mikið að verða eftir á. Ég eyði talsverðum tíma utan vinnu að kynna mér ný AI-trikk, og það líða ekki margir dagar þar til gömlu trikkin verða úrelt.

Ég hika þó alltof oft við nýjar hugmyndir. Eflaust er einhver annar búinn að fá hana og kominn með prótótípu. Það er svo lítið mál.

Sturlaðir tímar.