lommi

lommi.is - Síðasta ljóðabók Sjóns

lommi

Síðasta ljóðabók Sjóns

Síðasta ljóðabók Sjóns er eftir Arngrím Vídalín og Jón Örn Loðmfjörð. Allir textar í bókinni eru unnir uppúr ljóðum Sjóns og viðtölum við hann.
hreistraður fákur hleypur niður augnlok mín og leggur niður næfurþunnar blæjur lykt af lirfum berst fyrir hornið og býr til falleg sár við brjóst mitt fiskar við hvern fingur og með dúfur í ermunum í langröndóttum náttslopp í myrkrinu og ljósinu og öfugt
Kápan á Síðustu ljóðabók Sjóns sem Fanney Sizmore hannaði

Sjón um Síðustu ljóðabók Sjóns

Ég er búinn að fá eintak af bókinni og get mælt með henni. Það kemur mér á óvart hversu mörg tækifæri til ljóða eru falin í orða- og myndabanka frumgerðanna. Best væri að þeir sem keyptu Ljóðasafnið mitt kipptu þessari bók með sér líka, og öfugt. Saman leggja þær grunninn að jólaspili ljóðelsku fjölskyldunnar í ár. Eins og André Breton þreyttist ekki á að minna okkur á þá sagði Greifinn af Lautreamont: Ljóðið er skapað af öllum. Til lukku Celidonius!
Kápu hannaði Fanney Sizemore

Sækja Síðustu ljóðabók Sjóns

pdf snið mobi snið