lommi

Færslur merktar: ganga

Snæfelsjökull

Á rölti mínu um hundraðogátta sá ég vel í Snæfellsjökul. Fyrrum nágranni minn sagði að sæist vel í Snæfellsjökul þýddi það að… ég náði því aldrei hvað það þýddi…

Nágranni minn var orðinn ansi hrumur og mér fannst leiðinlegt að biðja hann í sífellu að endurtaka sig, svo mér fannst betra að segja sem minnst.

En að sjá Snæfellsjökul þýðir eitthvað.

Sunnudagssjálfa III

Súpan heppnaðist ágætlega, en börnunum fannst rófubitarnir of stórir.

Við fórum í göngutúr en það fór að rigna. Það fannst mínu fólki bara gaman.

Sunnudagssjálfan er ekki af mér, heldur af úrræðagóðum systkinum
Sunnudagssjálfan er ekki af mér, heldur af úrræðagóðum systkinum