Færslur merktar: stjórnmál

Drög að raunveruleika

Efni: Raunveruleikaþáttur

Nafn: Skuggaráðið

Þátttakendur: Stjórnmálaflokkar

Staðsetning: Hótel Glymur

Stutt skýring

Í hverjum þætti er nýr og nýr flokkur boðaður í kappræður á Hótel Glym, en það eru í raun engar kappræður. Þess í stað er stjórnmálafólkið sannfært um að enginn annar hafi komist og þau séu nú veðurteppt þarna. Því næst að eitthvað hræðilegt hafi gerst og þau séu eina stjórntæka fólkið eftir í landinu og sitji því í einhverskonar skuggaráði og þurfi að taka afdrifaríkar ákvarðanir. Þarna kynnumst við loksins innri manni stjórnmálafólks, ómengaður af skoðanakönnunum og kosningum.

DJÓK.

Forsetakosningar

Við ættum öll að skiptast á að vera forseti. Ár í senn.

Valið handhófskennt. Enginn fær að vita hver er eða var forseti.

Allir fá að njóta vafans þegar eyður eru skoðaðar í ferilsskrám,

kannski var viðkomandi forseti?

(Ég gæti hafa stolið þessari hugmynd frá Almarri — en hann ætti að fara blogga.)